Fjármálaráðgjöf - segðu upp líkamsræktarkortinu!?
12.11.2008 | 08:19
'Eg var að heyra að það fyrsta sem fjármálaráðgjafar segja fólki að gera í kreppu er að segja upp líkamsræktarkortinu. Þeir vilja meina að fólk geti frekar farið út að ganga/skokka í stað þess að eyða pening í líkamsrækt. Auðvitað er gott og gilt að fara út að ganga. En það er svo mikið innifalið í að fara í líkamsrætarstöðina. Öll fjölbreyttnin og síðast en ekki síst félagskapurinn.
Ég vona að það sé ekki algilt að fjármálaráðgjafar séu að ráðleggja fólki þetta. Að rækta líkama sinn er líka að rækta sálina og andann. Og ekki er félagskapurinn síður mikilvægur. Komast út úr húsi, hitta annað fólk og spjalla um daginn og veginn.
Líkamsrækt er besta og árangursríkasta leiðin til að láta sér líða betur andlega, það er engin bábilja og þekki ég það vel af eigin reynslu.
En hvað finnst ykkur? Er líkamsræktarkortið það fyrsta sem myndi fjúka hjá ykkur? Og þekkið þið það af eigin raun - að fjármálaráðgjafar séu að ráðleggja fólki að segja upp líkamsræktarkortinu sínu?
"- ég stóðst ekki þessar myndir ..
"











Athugasemdir
Þó mér finnist þessi vaxtarræktartröll hrikalega ljót þá væri líkamsræktarkort ekki það fyrsta sem ég sparaði ef ég væri með það. Smá sjálfsdekur er nauðsynlegt, einmitt í öllum þessum ömurleika. Ég fer í neglur sjálf og það eru verðlaunin mín fyrir að hætta að reykja á sínum tíma. Og þá gilda sömu lögmál um það. Það mátti ýmislegt ganga á áður en maður hætti að kaupa sígarettur og þannig er það um þetta eina sem ég leyfi mér í staðinn.
Birna M, 12.11.2008 kl. 08:32
Góð athugasemd hjá Birnu. Ég er ekki með líkamsræktarkort en fer í sund.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 12.11.2008 kl. 13:46
hef lesið á mörgum svona listum með ráðum til að spara að maður eigi að segja upp líkamsræktarkortinu
ég myndi ekki gera það eins og staðan er í dag.
Hulda, 12.11.2008 kl. 22:30
Því miður er þetta að gerast.En þetta er ekki djúp hugsað.Það má nefnilega komast hjá mörgum dýrum kvillum með líkamsrækt.
Solla Guðjóns, 13.11.2008 kl. 10:24
Ég er náttúrlega alger aðdáandi þinn frá 1 og upp í 10. En ef ég á að svara heiðarlega, þá myndi kortið mitt fjúka. Ég labba og hjóla - og labba oftast með félaga mínum sem annars hefði komið með mér t.d. í ræktina. Ég verð að spara einhvers staðar og líkamsræktin mætir afgangi hjá mér.
Þýðir ekki að ég elski þig eitthvað minna!!!!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 15:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.