Blessuð börnin :(

Pabbi að keyra börnin í skólann.  Börnin sitja í alsakleysi sínu í bílnum. Pabbi var eitthvað skrýtinn en þau átta sig ekki á afhverju.  Börnunum leið undarlega. Bíllinn sveiflast furðulega til á veginum. En í leikskólann komust þau þrátt fyrir að oft á leiðinni hafi munað litlu að illa færi.

Maður  var stöðvaður í Kópavogi í gærmorgun en hann átti mjög erfitt með að halda bíl sínum á veginum. Segir lögregla, að maðurinn megi teljast heppinn að hafa ekki lent í alvarlegu umferðaróhappi en hann var nýbúinn að aka börnum sínum í leikskóla þegar lögreglan stöðvaði för hans. Þessi maður var undir áhrifum fíkniefna!!!!!  

 Ég á ekki orð og langar helst  að gráta. Börnin velja sér ekki foreldra og ekkert barn á þetta skilið.  Fólk missir dómgreind undir áhrifum hvort sem er undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.  Guð einn má vita hvað börn þessa manns mega þola. 

Barn í höndum

 

 


mbl.is Þrir teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: mongoqueen

Já þetta er sko skelfilegt, við vorum einmitt að ræða þetta í vinnunni í dag þegar við sáum fréttina um þetta.

mongoqueen, 24.8.2007 kl. 16:41

2 Smámynd: Kolla

Er fólki í dag alveg skít sama um aflieðingar gjörða sinna, mér er spurn. Þetta fer alveg rosalega í taugarnar á mér. Enda er ég nýbúin að lésa yfir einum sem hafði gert þetta og fanst það rosa kúl

Kolla, 24.8.2007 kl. 17:13

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég á ekki orð...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.8.2007 kl. 19:12

4 identicon

jésús minn fólk er ekki í lagi... þetta eru BÖRNIN HANS og maður hélt nú aðhann færi nú að passa vel uppá þau og myndi ekki stofna þeim og öðrum í hættu í umferðinni!!!! á ekki til orð yfir hvað mér finnst þetta mikil heimska

Þóra Elín (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 01:35

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Svona fólk á ekki skilið að eiga börn!

Huld S. Ringsted, 25.8.2007 kl. 08:48

6 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Æ! Þetta er ömurlegt. Alkahólismi er eigingjanasti sjúkdómur á jörðinni. Sammála, hvað ætli litlu greyin þurfi að þola dags daglega. Eigðu ofur góða helgi, Knús á þig

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 25.8.2007 kl. 11:10

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa....ég er bara sleginn........en er mikið sammála ykkur og þá Elínu með að alkahólismi  og eyturfíkn séu eigingjörnustu sjúkdómarnir.

Eigðu góðan laugardag Ester mín.

Solla Guðjóns, 25.8.2007 kl. 12:31

8 identicon

Veit ekki alveg hvernig ég ætti að skilja "eigingjarnasti sjúkdómurinn" ... hvað meinarðu með því?

Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur, og ég er líka í sjokki yfir þessari frétt.

Knús til þín Ester, frá Danmörku!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 25.8.2007 kl. 15:36

9 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta er mjög sorglegt.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 26.8.2007 kl. 13:19

10 identicon

Svona fólk á ekki að fá að eignast börn. Þetta er alveg hræðilegt.

Bryndís R (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 16:44

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mér dettur nú fyrst í hug hvar var móðirin ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.8.2007 kl. 01:07

12 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Passið upp á fordómana ........kannski er þetta toppnáungi en er búinn að leiðast út í vímuefnaneyslu og mun þá sjálfsagt naga á sér handabökin það sem hann á eftir ólifað.

Þekki nokkuð marga toppmenn og konur sem hafa afrekað margt slæmt en hafa snúið við blaðinu og eru topp fólk í dag.......Munið það vill engin vera svona....þess setningu nota ég oft á sjálfan mig þegar að ég lendi í eða sé ógæfusamt fólk .....til að forðast fordóma sem ég á það til að falla í.

En þetta eru hræðilegar fréttir og það versta er að þetta er að gerast allt í kringum okkur....Hversu margir haldið þið að séu að keyra td snemma á Sunnudagsmorgnum nýkomnir heim en voru kannski búnir að lofa að fara eitthvað með börnin.....

Einar Bragi Bragason., 27.8.2007 kl. 23:56

13 Smámynd: Guðný Linda Óladóttir

Þetta er hræðilegt

Guðný Linda Óladóttir, 30.8.2007 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband