Hahaha..SNILLD.. Verðið að lesa!

arabian princess3Mamman gekk fram hjá herbergi dóttur
sinnar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið
og taka vel til í öllu herberginu.

Hún sá að það var umslag á miðju
rúminu og á því stóð: TIL MÖMMU. Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið
og las skjálfhent bréfið sem í því var.

Elsku mamma. Það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með bréfi þessu að ég er hlaupin að heiman.


Ég geri þetta
svona til að koma í veg fyrir að þið pabbi reiðist mér. Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er svo yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína.


En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé svo glaður með það. Hann er þegar búinn að kaupa
hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af
eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur.

Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum og ég er svo innilega sammála honum með það.


Ahmed hefur kennt mér það að marijuana gerir engum illt í raun og veru og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því afgangs til að skipta á því og kókaíni og
E-töflum handa okkur báðum.


En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!!


En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin 15 ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa.
Þar að auki er Ahmed orðinn orðinn þrítugur þannig að hann veit vel hvað hann er að gera.
Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín
dóttir Guðrún.

PS:
Mamma, ekkert að ofansögðu er satt.
Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi. Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnaspjaldið mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni.
Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

he he he og svo eitt þú ert algjör drottning

Einar Bragi Bragason., 21.8.2007 kl. 00:53

2 identicon

Ragga (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 01:02

3 Smámynd: mongoqueen

Múhahahaha

mongoqueen, 21.8.2007 kl. 09:19

4 Smámynd: Solla Guðjóns

LoL ...var búin að sjá þetta áður og þá var ég farin að halda ofan í mér andanum og jesúsa og já gott ef var ekki að koma tár.. Þetta er tær snilld Foreldrasjokk og léttir ..útsmogið

Solla Guðjóns, 21.8.2007 kl. 11:03

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já þessi er góður. Ég hef séð þetta reyndar áður.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 21.8.2007 kl. 11:14

6 identicon

Alveg æðisleg dæmisaga!! (skyldi maður eiga von á þessu sjálfur??)

Kveðjur og knús frá Akureyri!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 13:48

7 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.8.2007 kl. 21:12

8 Smámynd: Heiðrún Klara Johansen

hehehe

Heiðrún Klara Johansen, 21.8.2007 kl. 23:28

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 22.8.2007 kl. 08:30

10 Smámynd: Kolla

ROLF

Kolla, 22.8.2007 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband