Klukkutími í bílalest frá Kjalarnesi að Mosó!

Pirrr! Er ekki að grínast. Lenti í umferðarlestinni frá kjalarnesi að mosfellsbæ núna rétt áðan.  Aldrei lent í öðru eins.  Var að koma af ættarmóti á Hellissandi.  Meira um það síðar, tók fullt af fallegum myndum en þarf að kaupa nýja snúru til að koma þeim í tölvuna þar sem að einn ónefndur nagaði í sundur hina snúruna. Shocking

Snæfellsjökull

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ónefndur krúttulegur hvutti :þ

Ragga (IP-tala skráð) 24.6.2007 kl. 22:18

2 identicon

Þessir "ónefndu" eru alltaf svo skemmtilegir, ... sérstakur þjóðflokkur þetta! Ég hlakka til að sjá myndirnar, en mundu bara að klukkutími í biðröð er klukkutími í kennslu í þolinmæði. Fjársóður að búa að því!

Hmmm.... keyptirðu þetta með kennsluna ... ?

Knús að norðan!

(ps. Extra flottar myndir kalla ég púsl-myndir ... ég væri svo sannarlega til í að púsla púsluspil (1000 kubba) sem væri gert úr þessari mynd af Snæfellsjökli!!) 

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 24.6.2007 kl. 23:58

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ferlega fúlt að lenda í svona bílaþvögu.  Sérstaklega þegar heitt er í veðri.  Úff, hvað ég skil þig.  Hlakka til að sjá myndirnar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.6.2007 kl. 20:47

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Flott mynd. Best að taka bara snúruna úr svo ónefndur komsist ekki í hana. Ef engi er framan á tölvunni þinni er þetta lítið mál. Ég hef þetta svona núna efir að eg keypti nýju véina er samt enn með gamal tengið. Hver veit hversvagna. 

Leiðinlegt að lenda í svona lest.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 25.6.2007 kl. 21:31

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Blessuð vertu það er nákvæmlega ekkert fúlt við að lenda í svona þvögu....njóta útsýnissins bara og vera ekkert að agnúast yfir því sem maður fær ekki breytt.....Hvurslags! Þú ert samt alveg flott sko...

Heiða Þórðar, 25.6.2007 kl. 22:54

6 Smámynd: Ester Júlía

Takk fyrir skilninginn kæru vinir og .......................HEIÐA! .  Nei í alvöru þá var þetta EKKI skemmtilegt..þar sem ég var komin með skrýtinn verk í aftanvert vinstra lærið og gat engan veginn verið.  Þetta var í alvöru ekki það sem var efst á óskalistanum hjá mér akkúrat þarna ... USB Hvutti..híhí.. Doddi.. ég er búin að vera að brjóta heilann..hvað kennslu??

Ester Júlía, 25.6.2007 kl. 23:41

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 26.6.2007 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband