Nafn hvolpsins er komið!
13.4.2007 | 07:45
Ég þakka kærlega fyrir tillögurnar sem ég hef fengið um nafn á hvolpinn minn. Mörg skemmtileg og flott nöfn sem komu fram. Ég er nú loksins búin að velja nafn á hvolpinn, sem hann mun vonandi bera næstu 13 - 15 árin. Nafnið þykir mér virðulegt, fallegt, vinalegt og sætt og hentar bæði hvolpi og fullorðnum hundi. Það er ekki eitt af þessum týpísku hundanöfnum, svo það er ekki mjög algengt. Það á svo auðvitað eftir að festast við hann og verða hans. Ég er mjög ánægð með nafnið og hinir fjölskyldumeðlimirnar eru sáttir. ![]()
Hvolpurinn minn heitir "Lúkas"












Athugasemdir
Frábært og flott nafn.
Sigfús Sigurþórsson., 13.4.2007 kl. 08:02
Flott nafn. ER líka með hvítan lokk eins og Lúkas í Rocstar Supernova. Til hamingju.
Fríða (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 08:32
Til hamingju með nafnið á Krúttmundi Djóns
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.4.2007 kl. 08:47
Lúkas og kallaður Gurrí ... það væri flott! Til hamingju með nafnið!
Guðríður Haraldsdóttir, 13.4.2007 kl. 09:59
Gott nafn á þennan sætulíus
Knús og góða helgi.
Solla Guðjóns, 13.4.2007 kl. 12:48
Ohh til hamingju með krúttið....og Lúkas er sko töff nafn. Einn gárinn minn heitir Lucas og framtíðar litli strákurinn minn *hóst* heitir líka Lucas
BARA flott nafn.
Hafðu það gott um helgina skvís
Melanie Rose (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 19:45
Alveg brilliant nafn á hundinn
! Svo er bara að bjóða okkur í ferminguna að einhverjum árum liðnum
Heiða Þórðar, 13.4.2007 kl. 20:26
Mér finnst þetta vera nafn við hæfi. Lúkas já það passar honum. Til hamingju.l
Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.4.2007 kl. 20:44
Glæsilegt !
bara Maja..., 13.4.2007 kl. 21:12
Ooo hvað ég er ánægð með ykkur kæru vinir..allir samþykktu nafnið á hvolpinum
.
Þakka kærlega fyrir mig!
Ester Júlía, 13.4.2007 kl. 21:40
Flott nafn á hryllilega flottum hundi
Sigrún Friðriksdóttir, 14.4.2007 kl. 04:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.